Ég held að það felist ýmis tækifæri í samstarfi á milli opinberra aðila og einkaaðila. Það sem ég tel skipta mestu máli er að við nýtum mjög vel öll úrræði sem við höfum yfir að ráða í heilbrigðisþjónustunni og að verkefni séu sem flest á réttu þjónustustigi,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans.
Hann segir að leggja þurfi áherslu á skynsamlega verkaskiptingu á milli heilsugæslunnar, einkarekinnar sérfræðiþjónustu og Landspítala og annarra sjúkrahúsa.
„En aðalatriðið er að við erum með þessa lykilþjónustueiningar í heilbrigðisþjónustunni sem sameiginlega verða að ráða við þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir. Því skiptir mjög miklu máli að við nýtum öll þau úrræði sem við búum yfir eins vel og mögulegt er,“ segir Runólfur en rætt er við hann í Fréttablaðinu í dag um málið.