Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, ræddi við Egil Helgason um stríðið í Úkraínu og um málefni Rússlands í Silfrinu í dag. Sagði hann þar að innrás Rússa hefði á vissan hátt komið sér á óvart. Fréttablaðið fjallaði um viðtalið hér.
Rússland segir Ólafur að hafi aldrei kynnst lýðræði, mannréttindum eða frjálsum markaði og að ekki hafi verið hægt að ætlast til þess að landið tæki strax upp slíka siði eftir fall Sovétríkjanna.
Slíkt kæmi til með að taka allt að fimmtíu ár og að helsta áhersluefni Vesturlanda þangað til væri að leyfa Rússum að glíma við sín innanlandsvandamál án þess að skemma aðrar þjóðir. Ekki væri hægt að ætlast til þess að Rússland yrði á augabragði eins og „stór Svíþjóð.“
„Ég hitti Pútín fyrst fyrir tuttugu árum síðan í opinberri heimsókn,“ sagði Ólafur um kynni sín við forseta Rússlands. „Hann hefur á öllum þessum fundum verið tiltölulega hógvær og skynsamur, hlustað á öll rök, aldrei reynt að ýta mér eða Íslandi í neina óþægilega stöðu.“
„Meira að segja á fyrstu árunum fannst mér margt sem hann sagði merkilegt. Á þessum fyrstu fundum sagði hann mér að hann hefði varað Bandaríkin við íslamistum og að þeir myndu gera árás á Bandaríkin en að enginn hefði verið að hlusta á hann. Ég var líka með honum í opinberum samkvæmum. Hann kom mér ekki fyrir sjónir sem einhver kolruglaður fantur,“ segir Ólafur.
Ólafur segir að hann hafi tekið eftir hugarfarsbreytingu hjá Rússum fyrir um fimm til sex árum og að þeir hafi þá komist í það sem hann kallaði bunker mentality. „Sú reynsla sem ég hafði að honum var að hann var fullkomlega rational og skynsamur. En það fór að vera einhver breyting í Rússlandi fyrir fimm til sex árum síðan.“
„Pútín er forseti lands sem búið er búið að fara í gegnum gríðarlegar breytingar, búið að taka stóra parta af og hefur glímt við mikla efnahagsörðugleika við þróun. Því miður er það þannig að við getum ekki óskað okkur valdhafa í öðrum löndum,“ segir Ólafur.
„Var Ólafur Ragnar virkilega að segja í Silfrinu rétt áðan að það væri búið að taka stóra hluta af Rússlandi,“ segir Alexandra Briem forseti borgarstjórnar í færslu sinni á Facebook þar sem hún bregst við viðtali Ólafs.
„Ég vissi að hann væri hrikalegur...en þetta er alveg út úr kortinu. Bókstaflega,“ segir Alexandra.
Færsluna má sjá hér að neðan.