Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands segir að skrifstofu sambandsins berist margar tilkynningar um að atvinnurekendur í landinu misnoti hlutastarfaleiðina sem felur í sér að fyrirtæki geta minnkað starfshlutfall launafólks niður í allt að 25%, gegn 75% framlagi atvinnuleysistryggingasjóðs.
Mörg dæmi séu um að atvinnurekendur ætlist til að fólk í 25% starfi vinni hálfan daginn og allnokkur eru í þá veru að launamenn í svo lágu starfshlutfalli sé krafðir um heilan vinnudag, vinnuvikurnar á enda. Skrifstofa Alþýðusambandsins safni þessum kvörtunum saman og muni senda þær til Samtaka atvinnulífsins þar sem nöfn umræddra fyrirtækja og atvinnurekenda komi fram. Mikilvægt sé nú að allir landsmenn standi hér á verði, enda sé hér um mjög alvarlega misnotkun á almannafé að ræða.
Drífa er gestur fréttaþáttarins 21 á Hringbraut í kvöld og ræðir þar einnig átökin innan miðstjórnar ASÍ, en þrír stjórnarmenn, þau Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Harpa Sævarsdóttir, varaformaður VR og Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur af Skaganum hafa sagt sig úr stjórninni af því forysta ASÍ var ekki reiðubúin að lækka tímabundið mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð úr 11,5% í 8% til að koma fyrirtækjum til aðstoðar og verja störf. Hún segir það prinsipp af sinni hálfu að krukka ekki í þessa sjóði launafólks, en óttast ekki aukin átök, hvað þá klofning innan ASÍ vegna þessa, enda sé ákvörðunin um að standa vörð um lífeyrissjóðina byggð á lýðræðislegri niðurstöðu innan ASÍ, sem í þessu tilviki sé mjög skýr.
Frétta-og umræðuþátturinn 21 er sýndur á Hringbraut og vef Hringbrautar kl. 21:00.