Gleðifregnir hafa borist frá einum forsetaframbjóðenda. Forsetaframbjóðandinn Axel Pétur Axelsson á von á barni. Hann greinir frá þessu í ummælakerfinu hjá Visi sem birti í dag nærmynd af þeim fimm forsetaframbjóðendum sem gera atlögu að sæti Guðna.
Þar er tekið fram að Axel, sem er sjálftitlaður þjóðfélagsverkfræðingur, sé fjögurra barna faðir. Axel sagðist í apríl síðastliðnum til að mynda ætla að reka ríkisstjórnina, þegar hann tilkynnti framboð í samtali við Fréttablaðið.
Axel er því í hópi með Guðna Th. Jóhannessyni, sitjandi forseta, Guðmundi Franklín Jónssyni, Arngrími Friðrik Pálmasyni, Kristjáni Erni Elíassyni og Magnúsi Ingberg Jónssyni, sem allir hafa tilkynnt framboð.
Ljóst er þó að Axel á ekki fjögur börn líkt og fram kemur í þeirri umfjöllun heldur fimm. Þetta bendir hann sjálfur á í ummælum fyrir neðan greinina, eins og hans er háttur á. Þá segist hann jafnframt vera með eitt á leiðinni.
„Takk fyrir góða grein,“ skrifar Axel. „Ég býð alla frambjóðendur velkomna í slaginn og hef mikinn áhuga á að vita hvað þeir eru að pæla...vonandi brýtur þessi grein þagnamúrinn...ps. ég á fimm börn og eitt á leiðinni,“ skrifar forsetaframbjóðandinn og lætur broskall fylgja.