Ragna Sigurðardóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, skýtur föstum skotum að samflokksmanni sínum, þingmanninum Ágústi Ólafi Ágústssyni á samfélagsmiðlinum Twitter vegna ásakana á hendur honum um kvenfyrirlitningu í garð Katrínar Jakobsdóttur.
Vísar Ragna þar í frétt Fréttablaðsins af því að Ágúst hafi í dag beðist afsökunar vegna ummæla sinna í útvarpsþættinum Sprengisandi um helgina. Þar sagði hann ríkisstjórnina vera ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, en ekki Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Sökuðu í kjölfarið Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, þingmanninn um kvenfyrirlitningu. Sagði Svandís hann raunar sýna af sér „botnlausa kvenfyrirlitningu og það ekki í fyrsta skiptið.“
Botnlaus kvenfyrirlitning. Og ekki í fyrsta sinn. https://t.co/4cWP4LcnQl
— Svandís Svavarsd (@svasva) October 5, 2020
Ragna ber ekki blak af Ágústi á Twitter þrátt fyrir að þau sé samflokksmenn. „Svona eiga þingmenn ekki að tala. Gott og gilt að biðjast afsökunar en ummælin minna óneitanlega á þá kynferðislegu áreitni sem þingmaðurinn sýndi af sér og léleg viðbrögð hans í kjölfar opinberunar hennar.“
Þar vísar Ragna til þess þegar Ágúst greindi sjálfur frá því á Facebook í desember 2018 að trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar hefði áminnt hann fyrir áreiti í garð konu. Sagðist hann þá hafa í tvígang spurt konuna hvort hann mætti kyssa hana, en fengið neitun. Hafi hann þá brugðist ókvæða við og látið særandi orð falla. Fór hann í tveggja mánaða leyfi í kjölfarið.
Steig konan, Bára Hulda Beck, blaðamaður á Kjarnanum, fram í kjölfarið, upplýsti að það hefði verið hún sem um hefði verið að ræðaí pistli á Kjarnanum og sakaði hún þingmanninn um að hafa gert lítið úr áreitinu. Hafi hún því séð sig knúna til að tjá sig um málið og greina frá rangfærslum hans.
„Ágúst Ólafur reyndi ekki að kyssa mig tvívegis heldur ítrekað. Hann reyndi það aftur og aftur þrátt fyrir að ég hefði neitað honum og sett skýr mörk. Í hvert sinn sem ég neitaði honum þá niðurlægði hann mig með ýmsum hætti,“ skrifaði Bára Huld um málið sem Ragna rifjar upp.
Svona eiga þingmenn ekki að tala. Gott og gilt að biðjast afsökunar en ummælin minna óneitanlega á þá kynferðislegu áreitni sem þingmaðurinn sýndi af sér og léleg viðbrögð hans í kjölfar opinberunar hennar. https://t.co/szSulSw7Bn
— Ragna Sigurðardóttir (@ragnasig) October 5, 2020