Fyrir um ári síðan náðist skemmtilegt, en óheppilegt, atvik á mynd í Seljakirkju þegar starfsmaður kirkjunnar, sem var að skemmta börnum á öskudaggskemmtun, fór óvart í kanínubúninginn öfugan. Við það leit kanínan út fyrir að vera með einn beinstífan.
Sindri Vest, sem náði atvikinu á myndband og birti það í vikunni á samfélagsmiðlum, segirí samtali við Fréttablaðið í dagað hann hafi verið minntur á atvikið í símanum og ákvað að birta það.
„Börnin auðvitað föttuðu ekki neitt, það var fullorðna fólkið sem var að hlæja,“ segir Sindri við Fréttablaðið.
Presturinn í Seljakirkju, Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson, segir í sömu frétt að hann hafi vitað af atvikinu þótt hann hafi ekki verið þar sjálfur. Hann segir að hann viti ekki til þess að atvikið hafi farið fyrir brjóstið á neinum og telur að fullorðna fólkinu hafi þótt það fyndnara en börnunum, sem líklega skildu ekki brandarann.
Myndbandið má sjá hér að neðan.