Myndir af vegan pylsum inni á grúppunum Vegan Ísland og COSTCO - Gleði hafa sannarlega vakið kátínu og er fólk í kasti yfir þeim en þær þykja einstaklega reðurlaga.
Pylsurnar frá merkinu Beyond Meat eru vinsælar meðal grænkera og eru meðal annars seldar í Bónus. Frábærar á grillið í góðu sumarveðri.
Af myndinni að dæma virðast pylsurnar hafa skroppið örlítið saman þar sem þar standa í kæli í verslun. Netverjar keppast nú við að kasta fram typpabröndurum í athugasemdum við myndina.
„Ef þetta er ekki food porn þá heiti ég Karen,“ sagði Elva nokkur.
„Greinilega soldið kalt þar sem þessar eru geymdar,“ sagði netverji að nafni Sævar.
„Það þarf að nudda þessar vel áður en þeim er skellt á grillið.“ skrifar Þorleifur.
Einnig fylgja fjölmargar „Gif“ grínmyndir. Lesendur geta rétt ímyndað sér þemað.
Hér má finna grúppurnar: