Flokkur fólksins aflýsir öllum samkomum vegna COVID-19

Flokkur fólksins hefur ákveðið að aflýsa öllum samkomum á vegum flokksins á meðan útbreiðsla kórónaveirunnar stendur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu til flokksmanna, frá formanni flokksins, Ingu Sæland.

„Kæru félagar og vinir. Vegna þess fordæmalausa ástands sem skapast hefur í þjóðfélaginu vegna Covid19, mun Flokkur fólksins ekki standa að neinum mannamótum eða samkomun í sínu nafni fyrr en við höfum unnið stríðið gegn veirunni,“ skrifar Inga.

„Við hittumst svo endurnýjuð af kröftum í söng og í gleði þegar þessi vágestur er á bak og burt.“

Fleiri fréttir