Fimm pólskir karl­menn dæmdir fyrir stór­felldan OxyContin inn­flutning: Grun­lausir um yfir­vofandi fangelsis­vist

Dómar fimm pólskra karl­manna voru birtir í Lög­birtinga­blaðinu í dag þar sem ekki hefur tekist að birta þeim dóminn. Allir fengu þeir dóm fyrir inn­flutning á OxyContin, en þeir komu til landsins í mars og apríl síðast­liðnum. Frétta­blaðið gerði málinu skil en RÚV greindi fyrst frá.

Mennirnir fimm komu til landsins með sam­tals fjögur þúsund töflur af OxyContin, en efnin höfðu þeir falið með mis­munandi hætti: í nær­buxum, kaffi­pokum, sæl­gætis­pokum og jafn­vel rak­sápu­brúsa. Þetta kom fram í dómi á vef­síðu Héraðs­dóms Reykja­ness í lok septem­ber.

Tveir mannanna komu með sama flugi frá Gdansk í Pól­landi í lok mars. Annar þeirra hafði falið tæp­lega 900 töflur í MIMI sæl­gætis­poka og var með svipaðan fjölda af töflum í nær­buxum sínum, þeim sömu og hann klæddist við komuna til landsins.

Þá kom þriðji maðurinn til landsins í byrjun apríl síðast­liðnum frá Gdansk, en sá hafði falið tæp­lega 900 töflur í rak­sápu­brúsa í ferða­tösku sinni. Sá fjórði kom frá Katowice í Pól­landi, einnig í byrjun apríl, með svipaðan fjölda af töflum faldar í tveimur kaffi­bauna­pokum í ferða­tösku hans.

Hinn fimmti kom til landsins frá Gdansk um miðjan apríl. Sá reyndist vera með tæp­lega sjö hundruð töflur af OxyContin í fórum sínum, auk þess að vera með tæp­lega sex­tíu töflur af Contal­gin fíkni­lyfinu.

Fimm­menningarnir voru allir stöðvaðir við toll­hliðið á Kefla­víkur­flug­velli og fundust efnin við hefð­bundna leit.

Við dóms­upp­kvaðningu Héraðs­dóms Reykja­ness krafðist dómari upp­töku á efnunum, á­samt því að dæma mennina fimm til nokkurra mánaða fangelsis­vistar. Enginn þeirra mætti fyrir dóm né boðaði for­föll.

Fleiri fréttir