Ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi hefur birt auglýsingu á Instagram þar sem notuð er mynd úr #FreeTheNipple-brjóstabyltingunni sem var áberandi hér á landi fyrir nokkrum árum. Auglýsingunni hefur verið deilt á samfélagsmiðlum, minnir hún að einhverju leyti á „Fancy a dirty weekend in Iceland“-auglýsingu Icelandair sem fór öfugt í marga. Þá má einnig tala um vörusvik þar sem auglýsingin gefur til kynna að útlendingar geti séð mikið af nekt á götum úti hér á landi.

„Hvað liggur að baki að birta svona auglýsingu á Instagram hjá fyrirtæki sem er með 478 þúsund fylgjendur og hver er tilgangurinn?,“ spyr Kristján nokkur í hópnum Markaðsnördar á Facebook.
Eyvindur nokkur svarar: „Kannski að vara gesti við svo þeir fari ekki í kerfi þegar þeir mæta í sundlaugar og þurfa að vera berir fyrir framan annað fólk?“