Ferðamenn brjálaðir á Keflavíkurflugvelli: „Sjáum fram á aðra nótt af hreinum pyntingum“

Hundruð ferða­manna eru enn fastir í flug­stöðinni í Kefla­vík og komast hvergi. Fjöldinn allur hefur látið í sér heyra á sam­fé­lags­miðlum og ljóst að gífur­lega margir eru ó­sáttir.

Eins og fram hefur komið er Reykja­nes­brautin enn lokuð vegna veðursins. Staðan verður tekin á há­degi en enn er mikil truflun á flug­ferðum til og frá Ís­landi.

Fjöldi færslna um á­standið á Kefla­víkur­flug­velli má finna á Twitter. Einn deilir mynd­bandi af ferða­löngum á vellinum.

„Svona „sjá þau um“ far­þegana sína. Al­gjör­lega engin hjálp. 24 tímar á ís­köldum flug­velli,“ skrifar einn ferða­manna og birtir mynd­band þar sem má sjá fólk sofa á gólfinu á flug­stöðinni. Annar deilir mynd­bandinu og segist munu lög­sækja ein­hvern vegna þessa.

Ferða­maður að nafni Shahab Saqib segir lífs­reynsluna hafa verið þá verstu sem hann hafi upp­lifað. Vand­ræðin hafi ekki hlotist af veðrinu heldur við­brögðum Icelandair.

„Ég hef sagt þeim aftur og aftur að þau lúta reglum ESB og þurfa að veita far­þegum mat, ferð og hótel. Það er ekkert svar og öllum er sama,“ segir Shahab sem birtir langan þráð þar sem hann lýsir því hve ó­sáttur hann er.

Ferða­langur að nafni Sharon Ronan Duggan merkir ferða­mála­stofu og Icelandair í tísti sínu og segist gáttuð á með­ferðinni. „Við erum skilin eftir á köldum flug­velli, enginn matur, ekkert vatn og engin teppi og sjáum fram á aðra nótt af hreinum pyntingum. Ég mun aldrei koma aftur til landsins ykkar og mun segja vinum mínum að heim­sækja ykkur ekki!“

Þá segist ferða­maður að nafni Lauren eiga erfitt með að trúa því að það taki heila tvo daga að ryðja Reykja­nes­brautina. „Við erum föst í Reykja­vík og komumst ekki á flug­völlinn. Við erum núna fangar í þessu ömur­lega landi.“

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir