Ferðagjöfin sem samþykkt var á Alþingi í síðustu viku er nú loksins fáanleg í gegnum Ferðargjafar-app en gjöfin hljóðar upp á 5000 krónur. Allir þeir sem eru með íslenska kennitölu og eru fæddir árið 2002 eða fyrr geta sótt gjöfina.
Sjá einnig: Hjónin þurfa að borga 3.900 krónur fyrir gistingu á hóteli í eina nótt með morgunverði
Líkt og áður hefur verið greint frá er ferðagjöfin hluti af aðgerðapakka stjórnvalda og er henni ætlað að styðja við íslenska ferðaþjónustu í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins. Um þrjú hundruð fyrirtæki hafa gefið það út að þau taki við gjöfinni en meðal þeirra fyrirtækja eru hótel, bílaleigur, veitingastaðir, og svo framvegis.
Hvert fyrirtæki má að hámarki taka við eitthundrað milljónum í formo gjafanna en gjöfin gildir til áramóta og er hægt að gefa hana áfram ef viðkomandi sér ekki fram á að nota hana. Hver einstaklingur getur notað fimmtán ferðagjafir á gildistímanum.
Allar helstu upplýsingar um gjöfina má finna á ferdalag.is og ferdagjof.island.is.