Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er sagður liggja undir feldi þessa dagana vegna hugsanlegs formannsframboðs í Sjálfstæðisflokknum.
Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í dag en landsfundur Sjálfstæðisflokksins er framundan og verður haldinn dagana 4. til 6. nóvember næstkomandi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Guðlaugur ekki ákveðið eitt eða neitt sjálfur varðandi framboð en hann hefur ekki svarað fyrirspurnum Morgunblaðsins síðustu daga.
Talsverð eftirvænting ríkir vegna landsfundarins en þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 2018 sem Sjálfstæðisflokkurinn heldur landsfund. Hefur kórónuveiran sett strik í reikninginn á síðustu árum.
Bjarni Benediktsson hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2009 og hann er enn sem komið er sá eini sem lýst hefur opinberlega yfir framboði.
Hvort Guðlaugur Þór eigi möguleika gegn Bjarna skal ósagt látið en fari svo að hann fari fram gegn honum gætu forvitnilegir hlutir gerst í kjölfarið. Guðlaugur Þór er einn reynslumesti þingmaður Sjálfstæðisflokksins en hann var fyrst kosinn á þing árið 2003. Þá hefur hann gegnt fjölmörgum ráðherraembættum, meðal annars verið heilbrigðisráðherra og utanríkisráðherra svo eitthvað sé enfnt.