Afstaða, félag fanga, hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar frétta um hrakfarir Hannesínu Scheving á Tenerife. Líkt og Fréttablaðið.is greindi frá fyrr í dag skellti Hannesína, sem er hjúkrunarfræðingur og framhaldsskólakennari, sér til Tenerife um jólin. Þar höfðu óprúttnir sölumenn af henni rúmar 300 þúsund krónur rétt áður en hún hélt heim til Íslands.
Hún ætlaði að kaupa sér vatn en lenti þá á tali við sölumenn, sem líklega voru af indversku bergi brotnir, sem sýndu henni síma sem henni leist nokkuð vel á – enda verðið aðeins 40 evrur. Þegar upp var staðið höfðu sölumennirnir haft af henni 2.100 evrur, rétt rúmar 300 þúsund krónur á núverandi gengi.
Afstaða, sem er undir formennsku Guðmundar Inga Þóroddsonar, fordæmir glæpi:
„Afstaða fordæmir glæpi en skilur hreinlega ekki hvers vegna menntaðir framhaldsskólakennarar og hjúkrunarfræðingar geta ekki keypt sér þýfi af heiðvirðum götusölum á Tenerife,“ segir í tilkynningu félagsins á Twitter.
„Flestir vita að vafasamt fólk selur vafasama hluti á ferðamannastöðum. Kennarar ættu að vita það og eiga ekki að mæla með því við nemendur að kaupa af götusölum því þar fái þeir „fjári góðar” vörur á fínu verði.“
Eru skilaboðin skýr: „Látum falsaðar vörur og þýfi eiga sig!“