Óttar Guðmundsson, læknir, gerir veikindum Christian Eriksen, liðsmanni Dana í knattspyrnu, skil í bakþönkum sínum í Fréttablaðinu í gær en Eriksen hné niður i miðjum leik við Finna fyrir um viku síðan.
„Fréttamenn og hjartalæknar gerðu sér mikinn mat úr þessu atviki. Sálfræðingur kom fram og gaf góð ráð til þeirra sem leið illa eftir að hafa horft á aðfarirnar í beinni. Hann sagði að fólk gæti búist við andlegri vanlíðan næstu vikur. Þeim sem létu sér fátt um finnast ráðlagði hann að tengjast tilfinningum sínum betur. Eftir þetta hafa margir lýst yfir hryggð og áhyggjum af Kristjáni Eriksen og unnustu hans í mín eyru,“ segir Óttar í pistli sínum.
Hann segir að lífið sé fullt af uppákomum og áhrifamiklum hörmunum í beinni og að ómetanlegt sé að vita upp á hár við hverju megi búast þegar eitthvað slíkt gerist.
„Sjálfur horfði ég á atvikið en fann ekki fyrir neinu. Ég hafði ekki hugmynd um að mér ætti að líða illa og missti því af góðu drama. Aukin meðvitund um hugsanlegar afleiðingar alls sem gerist í lífinu tryggir endalaus verkefni fyrir alla þá sem sinna áfallahjálp og annarri sálgæslu,“ segir Óttar.
Hann segir að mestu skipti að fólk viti að ef því leið illa vegna atviksins þá væri það í lagi en veltir því fyrir sér hvort að það sama gildi um ættingja Þórðar Andréssona sem var hálshöggvin árið 1264 fyrir framan ættingja og vini.
Pistilinn er hægt að lesa hér í heild sinni.