Fær launahækkun og er nú með 3 milljónir í mánaðarlaun: „Það er ekkert lögmál að forstjórar eigi að vera á ofurlaunum“

Á fundi borgar­ráðs Reykja­víkur á föstudaginn lögðu Sósíal­ista­flokkur ís­lands og Flokkur fólksins fram bókanir varðandi laun Bjarna Bjarna­sonar, for­stjóra Orku­veitu Reykja­víkur og til­lögu starfs­kjara­nefndar frá júní síðast­liðnum um að laun Bjarna hækki aftur­virkt um 5,5 prósent frá fyrsta janúar 2022. Fréttablaðið greindi frá.

Sú til­laga var sam­þykkt þann 27. júní síðast­liðinn af stjórn Orku­veitu Reykja­víkur. Hildur Björns­dóttir, nú­verandi odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins sat hjá.

Í fyrra var greint frá því að stjórn OR hafi sam­þykkt að hækka laun Bjarna um 370 þúsund krónur á mánuði, eða 14,8 prósent. Laun Bjarna væru þar að leiðandi orðin 2.872.669 krónur. Með hækkuninni sem nú hefur verið samþykkt bætast tæp 160 þúsund við þau og kemur mánaðarlaunum forstjórans yfir þrjár milljónir.

„Á meðan að mann­eskjur á lág­marks­launum og undir því eiga ekki fyrir mat út mánuðinn er verið að hækka laun for­stjóra sem er á ofur­launum,“ segir meðal annars í bókun Sósíal­istaflokksins.

Í bókun Flokks fólksins segir að laun Bjarna séu út úr öllu korti, sér­stak­lega í ljósi þess að verð­bólga hafi ekki verið hærri síðan fyrir hrun.

„Það er ekkert lög­mál að for­stjórar eigi að vera á ofur­launum,“ segir meðal annars í bókuninni.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.

Fleiri fréttir