„Fæðingarþunglyndi er stórt orð“

Margrét Erla Maack, fréttakona og fjöllistakona, opnar sig í bakþönkum Fréttablaðsins í dag um fæðingarþunglyndi sem hún glímdi við í kjölfar fæðingar dóttur sinnar fyrir tveimur árum.

Tilefni pistilsins er einmitt tveggja ára afmæli téðrar dóttur en í pistlinum minnist Margrét Erla þess þegar hún fæddist og segir að við fæðinguna hafi hún ekki fundið til neinna tilfinninga.

„Í endurliti tekur hjarta mitt kipp þegar ég man eftir manninum mínum svipta sig klæðum til að leyfa henni að leggjast á bera bringuna sína, en þá fann ég ekkert. Ekki neitt,“ segir hún einlæg.

Hún segir að fyrsta árið hafi liðið þannig og hún sé enn með hana á brjósti því það sé það eina sem henni hafi liðið eins og hún hafi gert rétt.

Margrét Erla segir að hún hafi að lokum óskað eftir hjálp, en að það hafi verið allt of seint og að það hafi verið „ógeðslega erfitt“.

„Fæðingarþunglyndi er stórt orð. Það felur í sér hræðilegan niður á við-spíral og það erfiðasta er að það er ekki hægt að safna í neinn gleðibanka,“ segir Margrét Erla sem vonast til þess að skrifin geti hjálpað mæðrum á sama stað að segja það upphátt við einhvern annan.

„Ástin er þarna. En hún er hvorki sjálfsögð né skapast um leið og klippt er á naflastrenginn,“ segir Margrét Erla að lokum í pistlinum sem hægt er að lesa hér.

Fleiri fréttir