Eyþór Kamban Þrastarsson og fjölskylda hans eru farin frá Grikklandi og eru stödd á Kastrup flugvellinum í Danmörku. Ferðalagið hefur verið erfitt eftir að fjölskyldunni var meinaður aðgangur um borð í flugvél SAS til Íslands frá Grikklandi fyrir viku síðan vegna öryggisbrests. Þau lenda á Íslandi seinna í kvöld.
„Ég er að bíða á Kastrup í Danmörku. Við erum farinn frá Grikklandi,“ segir Eyþór í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að tilfinningin sé nánast engin, eftir allt sem hefur gengið á.
„Það er búið að brenna þetta svolítið út fyrir manni. Maður getur kannski glaðst þegar maður er kominn heim,“ segir Eyþór.
Eyþór segir að fjölskyldan hafi þurft að finna aðstoðarmanneskju til þess að fylgja þeim heim. Það hafðist, en þau fundu íslenska konu á Facebook sem átti miða í sama flug og fylgdi hún fjölskyldunni í flugið í dag.
„Við gátum fengið SAS með herkjum til þess að endurbóka okkur í þetta flug, með þessa konu sem „safety assistant“ eins og þau kalla það, sem er orð sem ég hef ekki séð neins staðar annars staðar heldur en í þessum samskiptum við SAS,“ segir Eyþór og bætir við að það var heppni að konan ætti miða í sama flug, annars hefði flugfélagið gert þá kröfu að hann myndi greiða fyrir flugið hjá aðstoðarmanneskjunni.
Eyþór segir að málinu sé alls ekki lokið, hann hefur aldrei orðið fyrir jafn greinilegri mismunum áður. Hann telur það líklegt að fjölskyldan höfði málssókn gegn SAS.
„Það verður skoðað mjög alvarlega og verður áreiðanlega gert. Þetta er ekki eitthvað sem við getum látið kyrrt liggja. Ég hef aldrei orðið fyrir svona augljósri og greinilegri mismunum á þeim grundvelli að sjá ekki,“ segir Eyþór.
Hægt er að lesa meira hér.