Ey­þór Ingi gerði ein­stök mis­tök á bið­skyldu: „ADHD hefur aldrei verið skemmti­legra“

Tón­listar­maðurinn Ey­þór Ingi var gestur í morgun­þættingum Ís­land vaknar í gær­morgun og rifjaði þar upp skemmti­legar upp­á­komur sem hann hefur lent í vegna at­hyglis­brests.

Hann rifjaði upp nokkrar skemmti­legar sögur í tengslum við at­hyglis­brestinn í þættinum en í einni þeirra gleymdi hann jakka­fötunum sínum uppi á bið­skyldu­skilti.

„Það var ein­fald­lega þannig að ég gat ekki talað í símann og haldið á jakka­fötunum mínum á sama tíma og tekið á móti leigu­bíl. Þannig að þegar leigu­bíllinn kom þá varð ég annað hvort að skella á eða leggja frá mér jakka­fötin. Sem ég gerði. Sem ég hengdi upp á bið­skyldu. Ég veit ekki til hvers,“ sagði Ey­þór í morgun­þættinum en jakkafötin urður eftir.

Í þættinum má heyra Ey­þór segja fleiri sögur um vand­ræði sín þar sem at­hyglis­bresturinn kemur við sögu.

Ey­þór var að kynna há­tíðar­tón­leika sína sem verða haldnir víða um land í desember. Á tón­leikunum blandar Ey­þór sögum, gríni og tón­list.

„Það er klárt mál að ADHD hefur aldrei verið skemmti­legra,“ segir í kynningunni á tón­leikunum en Ey­þór segir að sú setning hafi komið frá tón­leika­gesti en sjálfum finnst honum hún mjög lýsandi yfir stemninguna

Hægt er að horfa á við­talið hér.

Fleiri fréttir