Lögmaðurinn Eva Hauksdóttir segir að læknirinn Skúli Tómas Gunnlaugsson, sem er grunaður um stórfelld brot í starfi, eigi í nokkuð sérstöku sambandi við veruleikann. Skúli er grunaður um að hafa sett nokkra sjúklinga í lífslokameðferð án þess að það væri tilefni til þess, meðal annars móður Evu.
Í pistli á Vísi segir Eva að ekkert hefði heyrst um afstöðu Skúla síðan í desember 2021. Þá greindu fjölmiðlar frá því að Skúli teldi að kærumál gegn sér væru byggð á misskilningi.
„Nú hefur lögreglan lokið rannsókn og misskilningurinn er ekki stærri en svo að málinu hefur verið vísað til ákærusviðs,“ segir Eva.
Undanfarið hefur verið mikið fjallað um mál Skúla, sem segist borinn röngum sökum og að matsgerðir dómkvaddra matsmanna sanni sakleysi hans. Fjöldinn af vinum Skúla, læknar og heilbrigðisstarfsmenn hafa stigið fram og lýst yfir stuðningi við Skúla og gagnrýnt einhliða umfjöllun fjölmiðla í málinu.
Eva segir að samkvæmt matgerð sem varðar hjúkrun var reglum fylgt við umönnun. Hins vegar í matsgerð sem varðar læknisfræðilega meðferð, sem Skúli bar ábyrgð á að sögn Evu, sætti móðir hennar lífslokameðfer sem ekki voru forsendur fyrir.
„Staðan er einfaldlega sú að;
óháður sérfræðingur sem vann álitsgerð fyrir embætti landlæknis telur að ekki hafi verið forsendur fyrir lífslokameðferð,
sérfræðingar embættis landlæknis telja að ekki hafi verið forsendur fyrir lífslokameðferð,
dómkvaddir matsmenn hafa í tvígang komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið forsendur fyrir lífslokameðferð.
Þá er undarleg sú staðhæfing Skúla að sjúklingar hans hafi látist af náttúrulegum orsökum því eðli máls samkvæmt deyr fólk af náttúrulegum orsökum ef það er sett á lífslokameðferð. Þess vegna á ekki að beita lífslokameðferð fyrr en sjúklingurinn er sannarlega deyjandi,“ segir Eva.
Hægt er að lesa skoðunargrein Evu hér.