Fyrr í kvöld var greint frá Facebook-færslu blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Hringbraut. Hann furðar sig á því að fjölmiðlar hafi verið gerðir að blórabögli í eineltismáli, sem hefur verið áberandi í vikunni.
Hægt er að lesa nánar um það hér.
Eva Hauksdóttir, lögfræðingur, svara Jakobi fullum hálsi og segir fréttir sem fjölmiðlar hafi birt um málið ekki hafa verið í lagi.
„Það er ekkert í lagi við það að birta fréttir af sjálfsvígstilraun barns með mynd og nafni, hvað þá á meðan barnið er enn í áfalli og engan veginn í ástandi til að taka ákvörðun um að opinbera alþjóð einkalíf sitt.“ skrifar Eva.
„Ég get ekki sagt að ég sé hissa á því að blaðamenn séu svo skeytingarlausir um ábyrgð sína en ógeðslegt er það.“ bætir hún við.