Erna Bjarnadóttir, varaþingmaður Birgis Þórarinssonar, sem nýverið fór úr Miðflokknum í Sjálfstæðisflokkinn sagði Í bítinu á Bylgjunni í morgun að hún ætli ekki að skipta yfir í Sjálfstæðisflokkinn eins og Birgir.
„Ég hef ekki skráð mig í Sjálfstæðisflokkinn og er ekki á leiðinni þangað,“ sagði Erna.
Erna sagði í viðtalinu að auðvitað hefði ákvörðun Birgis komið henni á óvart. Þau hafi varið miklum tíma saman í aðdraganda kosninganna og þetta ekki komið upp. Hún sagði að þau hefðu þó rætt Klaustursmálið og að hún hafi vitað að Birgir hafi verið ósáttur með það og afleiðingar þess.
Hún sagðist ekki ósátt við ákvörðun Birgis og að hann yrði að vera sáttur við sínar ákvarðanir og sína sannfæringu. Hvað varðar tímasetningu brotthvarfsins sagðist hún ekkert hafa við umræðuna að bæta.
Hægt er að hlusta á viðtalið hér.