Erfitt að ná faraldrinum niður nema með hörðum aðgerðum

Björn Ingi Hrafnsson, blaðamaður, segir að lokaorð Víðis á upplýsingafundi almannavarna, sem fór fram fyrr í dag, hafi fært mörgum sannanir fyrir því að ástandið hvað varðar COVID-19 faraldurinn sé metið alvarlega en flestir átti sig á.

„Við finnum það mjög skýrt að þolinmæðin fyrir þessari veiru, og fyrir þessum aðgerðum af þessu stóra verkefni okkar, er þrotin hjá mjög mörgum og maður skilur það alveg en því miður er það bara þannig að við þurfum að halda áfram og það er ekkert annað í stöðunni,“ sagði Víðir á upplýsingafundi almannavarna í dag.

Björn Ingi segir það sömuleiðis ljóst að bæði sóttvarnalæknis og landlæknir hafi með formlegum hætti gert ríkisstjórninni ljóst að mikil hætta kunni að vera á ferðum, enda faraldurinn kominn út um allt í samfélaginu og erfitt að ná honum niður nema með mjög hörðum aðgerðum sem fæstir eru tilbúnir í.

Hann segir boltann vera hjá ríkisstjórninni en það enn óljóst hvað hún ætli að gera.

Greint voru minnst 108 smit í dag og yfirvöld flest sammála um að þeim muni fjölda í vikunni enn frekar.

Fleiri fréttir