Enn einum áfanganum náð: Guðmundur Felix skálar

Guðmundur Felix Grétarsson sem fékk á sig handleggi grædda fyrir um einu og hálfu ári í Frakklandi deildi í vikunni skemmtilegu myndbandi af sér að skála.

Guðmundur hefur verið afar opinskár um bataferli sitt eftir aðgerðina og að það sé alltaf möguleiki á því að líkami hans hafni handleggjunum. Hann hefur undanfarið deilt myndböndum af ýmsum áföngum sem hann hefur náð eins og að gefa forsetanum fimmu í nýlegri heimsókn sinni, að faðma fjölskyldumeðlimi og að bera sólarvörn á konuna sína.

Fleiri fréttir