The Grey skartgripirnir eru tímalausir og leitast ég við að sýna fínleg smáatriði, fágaðan stíl og fallegt handbragð” Segir gullsmiðurinn Steinunn Björnsdóttir sem hefur fengið afar góðar undirtektir á skartgripunum sem hún hannar undir merkinu The Grey.
The Grey samanstendur af skartgripum á borð við hringi, armbönd og hálsmen en einnig eru fáanleg nýstárleg höfuðskraut. Aðspurð um tilkomu The Grey segir Steinunn frá því hvernig Hönnunarmars hafi verið upphafið af öllu saman. ”Það mætti segja að fyrsta línan hafi þróast út frá armbandi sem ég hannaði og smíðaði fyrir samsýningu gullsmiðafélagsins á Hönnunarmars árið 2013. Galdrar og töfrar voru undirskrift sýningarinnar og sótti ég innblástur í sögu voodoo galdra og þá aðallega merki guðanna, þar sem fólk ákallar ákveðna guði. Merki guðsins Ogoun heillaði mig algjörlega upp úr skónum en sá guð var mikill stríðsmaður og valdamikill andi málma” segir hún glöð í bragði og bætir við að fyrsta skartgripalínan hafi verið undir miklum áhrifum frá guðinum Ogoun.
Allir skartgripirnir bera þess merki að vera vönduð smíði en Steinunn leggur mikla áherslu á fagmennsku við handverkið “Ég handsmíða alla skartgripina og notast eingöngu við eðal málma og steina” útskýrir hún og bætir við að fyrir vikið er hver skartgripur einstakur og engir tveir eru nákvæmlega eins.
Einkennandi fyrir allar línurnar er hversu fínlegir skartgripirnir eru og hvernig þeir mótast að líkamanum en lengi vel hefur það heillað Steinunni. \"Ég hef mikið verið að leika mér með keðjur og þeirra sveigjanleika og tók ég þá hugmynd enn lengra í annarri línu, The Grey” segir hún en sú lína vakti athygli og þá einna helst hringur úr línunni þar sem fínlegar keðjur og hálfbaugur mynda nýstárlegan hring.
Um þessar mundir er Steinunn í óðaönn að hanna og útfæra nýja skartgripalínu og sækir hún innblástur meðal annars í sögur Indjána “ Næsta lína mun verða mikið undir áhrifum Indjána frá Ameríku og hef ég verið að kynna mér mynstur, tákn og siði ýmissa ættbálka þaðan” segir hún og stefnir á að koma nýju línunni í verslanir á næstu mánuðum. Fyrir áhugasama þá eru Grey skartgripirnir fáanlegir í Aurum í Bankastræti.