Engin með­ferð fyrir Viðar á Ís­landi: Greindist með sjald­gæft krabba­mein

Viðar Daði Einarsson greindist með illkynja krabbamein fyrir tveimur vikum en óvíst er hvort Sjúkratryggingar taki þátt í lækniskostnaði. Meðferð sem getur bjargað lífi hans kostar fjórar milljónir króna.

Krabbameinið er sjaldgæft og hefur greinst á fimm stöðum í líkama hans; í lungum, andliti, heila og kirtlum.

Fréttablaðið greinir frá þessu og tekur viðtal við bróður Viðars, Guðna Jósep Einarsson.

Viðar Daði ásamt kærustu sinni Evu Gunnlaugsdóttir
Mynd/aðsend

Þarf að fara í gammageislatæki í Þýskalandi

Kærasta Viðars, Eva Gunnlaugsdóttir, er í læknanámi í Martin í Slóvakíu en læknar þarlendis mæltu með því að Viðar Daði færi í meðferð með gammageislatæki sem er til í Þýskalandi. Slík meðferð er ekki í boðið á Íslandi þar sem tækið er ekki til hérlendis. Viðar getur því ekki fengið meðferð á Íslandi og hefur ekki tíma til að bíða eftir að komast í gegnum umsóknarferli Sjúkratrygginga þar sem hann þarf að hefja meðferð strax svo hún geti borið árangur.

Þau sem vilja styrkja meðferð Viðars Daða er bent á styrktarsíðu hans. Hægt er að leggja inn á reikning sem skráður er á nafn Evu Gunnlaugsdóttur, kærustu Viðars Daða.

Reikningsnúmer: 0123 26 020277

Kennitala: 040292 2689

Fleiri fréttir