„Elítu­stæði fyrir fólk sem hefur efni á að kaupa niður­greidda raf­bíla“

Ekki eru allir í­búar Reykja­víkur sáttir við hækkun á í­búa­kortum og fjölgum bíla­stæða fyrir raf­bíla. Þröstur Guð­laugs­son, íbúi í Vestur­bænum, segir í hverfis­grúppu á Face­book að í dag hafi vinnu­menn á vegum borgarinnar mætt á Brá­valla­götuna til þess að geta tengt þar hleðslu­raf­búnað fyrir „dýru bílana sem ganga fyrir raf­magni“ eins og Þröstur orðar það.

Greint var frá því í ágúst að hækka ætti í­búa­kort Reyk­víkinga um 1.250 krónur á mánuði, eða úr 8.000 á ári í 30 þúsund krónur fyrir þau sem aka ekki hreinum raf­magns- eða vetnis­bílnum. Fyrir þau sem aka slíkum bílum er verðið helmingurinn, eða 15 þúsund krónur á ári. Fjallað var nokkuð ítar­lega um málið á vef Frétta­blaðsins.

Líf­legar um­ræður eru við færslu Þrastar þar sem fólk ýmist fagnar breytingunum, kvartar undan hækkuninni eða segist telja hana eðlilega. Sumir eru sakaðir um forréttinablindu.

Saga Garðars­dóttir, leik­kona, fagnar breytingunni og gera má því ráð fyrir að hún aki um á raf- eða vetnis­bíl en Leifur Magnús­son, er ekki eins hress og segir að stæðin séu „ elítu­stæði fyrir fólk sem hefur efni á að kaupa niður­greidda raf­bíla“

Fleiri fréttir