Elísabet Welding Sigurðardóttir sagði nýlega á Twitter að starfsmaður hjá sýslumannsembættinu hafi ráðlagt henni að rengja erfðaskrá móður sinnar, þar sem hún hafði arfleitt Stígamótum, Félagi langveikra barna, Blindrafélaginu og Sjálfsbörgu háum fjárhæðum.
„Þú mátt ráðstafa 1/3 og gæinn hjá sýsló spurði okkur systurnar: ætlið þið ekki að rengja þetta og við: afhverju? Nú það gera það flestir. Við: NEI!,“ sagði Elísabet á Twitter.
Annar notandi á Twitter spurði þá Elísabetu hvort flestir geri þetta og svaraði Elísabet að það sé staðreynd.
„Börnin vilja alla peningana og fá þá vottorð um að viðkomandi hafi verið orðinn eitthvað gaga. Viðbjóðslegt. Okkur fannst svo fallegt að hún gæfi þessum félögum og vorum stoltar af því og auðvitað virtum við hennar vilja. Þetta voru hennar peningar!,“ sagði Elísabet.
Þá bendir Sturla Þengilsson að lögfræðingur hafi sagt við hann að þú þekkir engan fyrr en þú hefur skipt með honum arfi.
Þegar mamma lést þá hafði hún arfl. Stígamót, Félag langveikra barna, Blindraf. og Sjálfsbjörg (5 m. hvert þeirra eða 20 m.). Þú mátt ráðstafa 1/3 og gæinn hjá sýsló spurði okkur systurnar: ætlið þið ekki að rengja þetta og við: afhverju? Nú það gera það flestir. Við: NEI!
— Elísabet Welding Sigurðardóttir (@ElisabetSigur) December 4, 2022