Lögreglan í Greater Manchester þarf ekki að vinna með ákveðinn tímaramma til þess að komast að niðurstöðu um það hver næstu skref í máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar verða. Þetta kemur fram í skriflegu svari embættisins við fyrirspurn Fréttablaðsins en jafnframt segir í svarinu að á þessari stundu sé vonandi ekki langt í niðurstöðu.
Talsmaður Lögreglunnar í Greater Manchester sagði, í svari við skriflegri fyrirspurn Fréttablaðsins í gær, að engar nýjar upplýsingar lægju fyrir um stöðu mála hjá knattspyrnumanninum Gylfa Þór Sigurðssyni en 455 dagar eru liðnir síðan hann var handtekinn í Bretlandi, grunaður um brot gegn ólögráða einstaklingi.
Eftir svar Lögreglunnar spurðist Fréttablaðið fyrir um það hjá embættinu hvort það þyrfti að vinna með einhvern tímaramma í svona málum. Verður embættið að komast að niðurstöðu fyir einhverja ákveðna dagsetningu?
„Það er engin endanlegur tímarammi sem slíkur vegna þess að við þurfum að tryggja að framkvæmd sé ítarleg rannsókn áður en skoðað er að fara með málið fyrir dómstóla. Á þessari stundu er vonandi ekki langt í niðurstöðu," segir í svari Lögreglunnar í Greater Manchester í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Gylfi hefur verið laus gegn tryggingu frá því skömmu eftir handtöku þann 16 júlí á síðasta ári og nýjustu vendingar í málinu hefðu átt að verða ljósar undir lok júlímánaðar á þessu ári en ekkert er vitað um stöðu Gylfa Þórs né framvindu málsins.