Nú er veturinn loks kominn og honum fylgir eitthvað sem við Íslendingar þolum ekki: Að þurfa skafa bílinn á morgnana.
Flestir eru með flottar sköfur, aðrir láta geisladiska og kreditkort duga. Svo eru alltaf einhverjir sem reyna finna upp hjólið, eins og má sjá í myndbandi á Twitter sem Eiríkur Jónsson deildi.
„Kaupið ykkur sköfur og klæðið ykkur vel,“ skrifar Eiríkur og deilir sprenghlægilegu myndbandi af manni sem hellir sjóðheitu vatni á bílrúðuna sína, með þeim afleiðingum að hún springur.
Sjón er sögu ríkari.
Kaupið ykkur sköfur og klæðið ykkur vel. pic.twitter.com/ApWXkjVf0l
— €irikur Jónsson (@Eirikur_J) December 7, 2022