Ekkert smit annan daginn í röð

Enginn greindist smitaður innanlands eða á landamærunum samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Tölur verða ekki uppfærðar á covid.is fyrr en eftir hvítasunnuhelgina, það er á þriðjudag.

Þá taka gildi ýmsar tilslakanir sem heilbrigðisráðherra tilkynnti um í gær. 150 mega koma saman í stað 50 og grímuskyldu verður aflétt í verslunum. Þá lengist opnunartími til 23 á veitingastöðum.

Fleiri fréttir