Einn slasaður og þrír í haldi eftir skotárás í miðbæ Reykjavíkur

Einn hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir skotárás í miðbæ Reykjavíkur. Sjónarvottur segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi séð mann munda vélbyssu á þaki bílastæðahússins við Bergstaðastræti.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir þetta um málið í tilkynningu til fjölmiðla:

„Þrír karlar eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að tilkynning barst um skotárás utan dyra í miðborginni um eittleytið í nótt. Sá sem fyrir henni varð tilkynnt sjálfur um árásina, en viðkomandi var fluttur á slysadeild, gekkst þar undir aðgerð og er ekki í lífshættu. Mikill viðbúnaður var vegna málsins, en mennirnir þrír, sem áður voru nefndir, voru handteknir fljótlega eftir að rannsóknin hófst. Lagt hefur verið hald skotvopn og bifreið í þágu rannsóknarinnar. Við aðgerðirnar í nótt naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.“

Málið hefur eðlilega vakið óhug enda eru aðeins tveir dagar liðnir frá síðustu skotárás, þegar karl og kona voru skotin í Grafarholti. Tveir eru í haldi vegna málsins.

Ekki er langt síðan karlmaður var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana fyrir utan heimili hans við Rauðagerði.

Ekki er vitað hvort málin tengist en von er á tilkynningu frá lögreglu fljótlega.

Fleiri fréttir