Eini Íslendingurinn í frönsku útlendingahersveitinni: „Ég var að leita eftir einhverri áskorun"

Jens Nicolas Quental, eini Íslendingurinn í frönsku útlendingahersveitinni, segir í viðtali á K100 í dag að hann hafi skráð sig í sveitina í leit að áskorun. Hann segist hafa séð myndbönd af henni á YouTube þegar hann var yngri og þannig komist á snoðir um hana.

Jens gekk til liðs við hersveitina fyrir tæpum tveimur árum og er á leið til Suður-Ameríku eftir um einn mánuð. Hann segir í viðtalinu margar ólíkar ástæður fyrir því að fólk vilji ganga til liðs við sveitina.

„Svo er líka fólk frá Norðurlöndunum sem er bara að sækjast eftir ævintýri. Til að geta farið til Balí og Suður-Ameríku og fá borgað fyrir það líka,“ segir Jens og að hann sé einn þeirra.

Viðtalið er hægt að lesa og hlusta á hér á vef K100.

Fleiri fréttir