Íþróttafréttamaðurinn Einar Örn Jónsson hefur svarað gagnrýni Þorsteins Einarssonar á íþróttafréttir og telur að fólk eigi bara að gera það sem þeim finnst skemmtilegt og ekki tuða yfir öllum öðrum.
Þorsteinn sagði á Twitter: „ Afhverju eru íþróttafréttir? Og afhverju teljast þær svona merkilegar? - Eru sömu rök fyrir almennum fréttum og síðan íþróttafréttum?“
Færslan fékk mikla athygli en Einar, sem er einn fremsti íþróttalýsir landsins er ekki par sáttur við þessa skoðun Þorsteins og segir:
„Ótrúlegt hvað tilvist íþróttafrétta og beinna sportútsendinga í tv býr leigulaust í kollinum á sumu fólki. Fullt af tv stöffi sem ég skil ekkert í, en þá sleppi ég því að horfa á það. Einfalt og áhrifaríkt.“
Einn twitter notandi svarar Einari og segir: Þetta eru leiðinlegustu takes sem ég veit um
Sem Einar svarar: Það er bara svo spes að eyða tíma af lífi sínu í að tuða yfir því hvað maður fílar ekki, og skilur þá ekki. Er þá ekki betra að fókusa á hluti sem manni finnst skemmtilegir?
Ótrúlegt hvað tilvist íþróttafrétta og beinna sportútsendinga í tv býr leigulaust í kollinum á sumu fólki. Fullt af tv stöffi sem ég skil ekkert í, en þá sleppi ég því að horfa á það. Einfalt og áhrifaríkt.
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) May 1, 2022