Einar Bárðar með ákall: Hvetur þá sem keyptu hlut í Íslandsbanka og seldu til að gera þetta

Einar Bárðarson, almannatengill og þúsundþjalasmiður, birti ákall á Facebook-síðu sinni í gær vegna umdeilds útboðs á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Eins og komið hefur fram tóku margir þátt í útboðinu sem græddu fúlgur fjár þegar þeir seldu hlut sinn skömmu síðar. Einar höfðar til samvisku þeirra í færslu sinni:

„Ég hvet ykkur sem höfðuð aðgang að því að kaupa hlut í Íslandsbanka og selja jafn harðan með miklum ágóða til að láta þessa peninga renna frá ykkur í velferðar-, æskulýðs- eða líknarmála. Verkefna sem ekki er nægilegan fjármögnuð af hálfu ríkisins. Vegna þess að ekki eru til nægilegar peningar í málaflokkanna,“ segir Einar og heldur áfram:

„Styrktarfélög félög þeirra sem glíma við fatlanir, ólæknandi sjúkdóma, krabbamein og svona mætti lengi telja. Ef það heillar ekki þá má skoða náttúruvernd, íþróttafélög, félagsskap þeirra sem stuðla að betrun þeirra sem afplánað hafa dóma og svona get ég lengi talið upp verðug verkefni.“

Einar segir að sælla sé að gefa en þiggja.

„Þið voruð “heppin” og það er gott fyrir hjartað að deila heppninni, það er gott fyrir hjartað að gefa og tíminn núna fyrir páska er góður til þess. Þeim gefst er gefa.

Guð blessi ykkur öll og gleðilega páska.“

Fleiri fréttir