Sjónvarpsmaðurinn vinsæli Egill Helgason opnar sig í kvöld á Facebook síðu sinni um baráttu sína við kvíða. Þar lýsir hann þeirri upplifun að það sé líkt og maður sé sinn eigin fangi og fangavörður.
„Kvíði er helvítis melur. Því er líkast að maður sé sinn eigin fangi og fangavörður. Maður er innilokaður, veit að það er leið út í frelsið en hún lokast jafnóðum,“ skrifar Egill.
„Fangavörðurinn innrra með manni passar upp á að maður sofni ekki, kveikir skerandi ljósin reglulega, og endurtekur fyrir manni þráhyggjunar sem eru eins og fleygaðar í kollinn á manni. Maður gerir ekki stærri kröfur en að geta gengið sæmilega áhyggjulaus út í vorið – þeir dagar láta bíða eftir sér og tíminn sniglast áfram.“
Færslan hefur hlotið mikla athygli en þegar þetta er skrifað hafa um 850 manns brugðist við færslunni og fleiri en 200 manns skrifað athugasemdir við færsluna.
„Gangi þér vel í baráttunni við þennan leiðindapúka. Sendi þér baráttukveðjur,“ skrifar sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason. „Þú losnar úr þessum fjötrum Egill. Allt verður gott,“ skrifar borgarfulltrúinn Hjálmar Sveinsson.
Presturinn Jóna Hrönn Bolladóttir þakkar Agli fyrir að opna sig.
„Mikið er ég þakklát að miðaldra, dáður, gáfaður, hæfileikríkur og norrænn maður skuli deila líðan sinni á svona heiðarlegan hátt þannig að það snertir okkur öll. Þetta eykur lýðheilsu þjóðar.♥️Takk og gangi þér vel minn kæri.“