Egill Helga áhyggjufullur: „TikTok er svakalegt drullusvað“

Egill Helgason lýsir á Facebook áhyggjum sínum af samfélagsmiðlinum TikTok sem er einn sá vinsælasti á meðal ungs fólks í dag. Með færslunni deilir hann myndbandi þar sem fjallað er um eina af skærustu stjörnum miðilsins, Andrew Tate, sem sakaður hefur verið um kvenhatur.

„TikTok er svakalegt drukkusvað. Ég heyri af unglingspiltum sem eru að horfa á þennan ógeðslega kvenhatara - og foreldrar skilja ekkert þegar þeir byrja að enduróma ruglið. Svona breiðist út eins og eldur í sinu - náunginn er með áhorf talið í milljörðum smella og græðir á tá og fingri á því að boða eitraða karlmennsku og ofbeldi,“ segir Egill en fylgjendur hans og vinir virðast taka undir það og segja þetta bæði sorglegt og mikið áhyggjuefni.

Fleiri fréttir