„Ef læknarnir hafa séð sjö stungur þá hlýtur það að vera“

Margeir Sveins­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn á höfuð­borgar­svæðinu segir í samtali við Fréttablaðið að í heildina hafi fjór­tán verið hand­teknir og fimm verið sleppt í kjöl­far stungu­á­rásar á skemmti­staðnum Banka­stræti Club á fimmtu­dag. Hann segir að lög­reglan sé vör við hótanir á sam­fé­lags­miðlum milli aðila sem tengjast á­rásinni.

„Í heildina hafa fjór­tán verið hand­teknir og fimm hefur verið sleppt. Í gær fóru fimm aðrir í gæslu­varð­hald, annars vegar fóru þrír í tveggja vikna gæslu­varð­hald og tveir í eina viku. Svo er verið að gera kröfu um gæslu­varð­hald yfir fjórum sem teknir voru í gær og í nótt,“ segir Margeir.

Margeir segir að lög­regla sé vör við hótanir á sam­fé­lags­miðlum á milli aðila sem tengjast málinu. Hann segir að lög­regla að­hafist ekkert í slíkum hótunum, nema sá sem verði fyrir þeim á­kveði að kæra.

Í út­varps­þættinum Veislan á FM957 hélt einn af þeim sem varð fyrir stungu­á­rás því fram að hann hafi verið stunginn sjö sinnum.

„Ég get ekki stað­fest það. En ef læknarnir hafa séð sjö stungur þá hlýtur það að vera,“ segir Margeir.

Þá vildi Margeir ekki tjá sig um hvort lög­regla hafi lagt hald á vopnin sem voru notuð í á­rásinni.

Fleiri fréttir