„Ef allt gengur eins og í lygasögu“ verða fyrstu niðurstöður birtar í kvöld

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að „ef allt gangi eins og í lygasögu“ verði niðurstöður úr fyrstu sýnatökunni hjá Decode vegna kórónaveirunnar fáanlegar í kvöld.

„Það sem mér finnst flott­ast af öllu er það hvernig þetta fólk sem vinn­ur hjá mér í Íslenskri erfðagrein­ingu tekst á við þetta. Það verður unnið alla helg­ina, það verður byrjað að greina þessi 500 sýni á miðnætti hjá okk­ur og síðan verður unnið í alla nótt,“ segir Kári.

Hann segir engan hafa beðið starfsfólkið um að vinna á nóttunni eða um helgar. Það komi bara og ætli sér að gera þetta. Forstjórinn segir að kannski geti faraldurinn haft sínar jákvæðu hliðar. Hann gæti til að mynda þjappað okkur saman.

„Það er smá mögu­leiki að þetta þjappi okk­ur sam­an sem sam­fé­lagi. Að minnsta kosti þegar horft er á þetta fólk sem er að tak­ast á við þenn­an far­ald­ur. Það eru all­ir reiðubún­ir til þess að gera allt milli him­ins og jarðar. Það spyr eng­inn: „hversu lengi þarf ég að vinna“ eða „fæ ég borgað fyr­ir þetta“. Það eru bara all­ir að demba sér út í þetta af full­um krafti.“

Hann segir markmiðið að taka þúsund sýni á dag. Til þess þarf 50 manns í vinnu í þjónustumiðstöðinni. „50 starfs­menn vinna þar en tíu þeirra gátu ekki unnið yfir helg­ina vegna þess að þau eiga lít­il börn þannig að það var hringt í tíu starfs­menn sem vinna í Íslenskri erfðagrein­ingu í Vatns­mýr­inni og hver ein­asti sem var beðinn var reiðubú­inn til þess að koma,“ segir Kári.

„Ég á ekki orð yfir það hvað mér finnst þetta flott fólk.“

Fleiri fréttir