Leikkonan Edda Björgvinsdóttir hefur svarað leikhúsgagnrýni sem hljómaði í Víðsjá í Ríkisútvarpinu í vikunni og vakti mikla athygli. Nína Hjálmarsdóttur, leikhúsgagnrýnandi, fjallaði um sýninguna Sem á himni, og gagnrýndi meðal annars það að ófatlaður leikari hafi verið fenginn til að leika fatlaða persónu.
SJÁ EINNIG: Nína hakkar í sig söngleik: „Hvað er eiginlega í gangi í Þjóðleikhúsinu?“
„Magnað að fá þau skilaboð frá nýjasta spútnik RÚV að leiklist sé ekki fag og að Þjóðleikhúsinu beri í raun að finna fatlaðan einstakling sem getur leikið og sungið til að túlka einstakling á leiksviði, sem glímir við fötlun. Það er sem sagt nóg að mati nýjasta sérfræðings í leiklist að vera hæfileikarík fötluð manneskja með enga leiklistarmenntun, til að bera uppi sýningu í Þjóðleikhúsinu.“ skrifar Edda í færslu á Facebook-hópnum Menningarátökin og virðist pistillinn hafa móðgað hana fyrir hönd leikara.
Edda minnist á eftirfarandi bút úr gagnrýninni: „Það er lögmætt að spyrja spurningarinnar af hverju Þjóðleikhúsið fann ekki fatlaðan leikara til að túlka hlutverk Dodda, þar sem það er lítið mál að finna fatlaðan einstakling hér á landi sem getur sungið og leikið,“
Sjálf segist Edda nefnilega þekkja vel til um hversu hæfileikaríkt fatlað fólk sé
„Ég veit sjálfsagt betur en flestir aðrir hvað fatlað fólk er óendanlega hæfileikaríkt og birtist það í öllum listgreinum. Leikararnir mínir á Sólheimum hafa margoft slegið í gegn í leikritunum sem ég hef leikstýrt og þau búa yfir endalausri leikgleði og útgeislun þeirra er stórkostleg. Það sem við erum að gera á Sólheimum er samt áhugamennska í leiklist. Ekki atvinnumennska. Ef enginn hér á þessari síðu áttar sig á ergelsi mínu yfir þessari hugsanavillu sérfræðingsins þá biðst ég bara afsökunar og mun grjóthalda kjafti.“ segir Edda, en færsla hennar hefur skapað miklar umræður.