„Þetta gætu verið mannabein, þarna eru rif og hryggjarliðir sem geta ekki verið úr kind, segi ég, því ég hef séð margar kindagrindurnar. Rifin eru nokkuð stór,“ hefur DV eftir Ágústi Ísfeld sem fann dularfull bein í Grindavíkurhrauni, nálægt Fagradal í gær.
Ágúst gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta myndirnar sínar. Hann rak augun í beinin í gær þar sem hann var á fjórhjólarúnti.
Hefur DV eftir Ágústi að hann hafi tilkynnt fundinn til lögreglunnar. Þar hafi beinin vakið mikinn áhuga. Hann hafi þó ekki heyrt meir, annað en að lögreglan ætlaði sér að heimsækja svæðið með björgunarsveitarmönnum.
Hringbraut hefur ekki náð í lögregluna vegna málsins. Ágúst segir að varðstjóri hjá lögreglunni hafi í gær sagt honum að hann teldi að hér væri á ferðinni mannabein. Plastpoki lá yfir beinunum þegar Ágúst kom að þeim. Þau hafi farið á dreif þegar Ágúst hróflaði við pokanum.