Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur beðist afsökunar á að hafa ásakað þingmenn minnihlutans og nefnda Alþingis um að þiggja mútur vegna veitingu ríkisborgararéttar. Þetta segir hann á Facebook-síðu sinni.
„Það var ekki rétt af mér í ræðustól Alþingis að vitna til orðróms sem hefur verið í gangi – enda hef ég ekki lagt slíkt í vana minn. Í ræðu minni á þingi vísaði ég til þess orðróms sem hefur verið á kreiki um að tiltekinn þingmaður hafi greitt atkvæði um umsóknir um ríkisborgararétt handa einstaklingum sem hann hafði sinnt hagsmunagæslu fyrir. Þá hafi þingmaður hugsanlega í einhverju tilviki þegið þakklætisvott fyrir aðkomu sína að afgreiðslu mála,“ segir Jón á Facebook.
Hann segir að hafi ávarpað þennan orðróm, þar sem um alvarlegt mál væri að ræða ef rétt reynist.
„Það hvarflaði hins vegar ekki að mér að ásaka neinn um að hafa þegið mútur og mér þykir leitt að ég hafi ekki orðað þann hluta ræðu minnar nægilega skýrt. Með engum hætti vil ég saka þingmenn um mútuþægni,“ segir Jón.