Margir íslenskir notendur Twitter hafa tekið áskorun Chris Grosse um að birta myndir af sér eða öðrum sem rötuðu fyrir slysni inn á ljósmyndir. Sumar myndirnar eru fyndnar en aðrar innihalda ótrúlegar tilviljanir.
Hjálmar Örn Jóhannesson deilir ótrúlegri mynd frá Mallorca árið 1998. Var hann þar í ferðalagi með konunni sinni. Ótrúlegt en satt þá var núverandi kærasta hans á einni myndinni.
Stefán Máni segir:
„Þetta er alveg fjöldamorðingjakrípí!!“
Mallorca with my wife in 1998, but in the back my current girlfriend today! https://t.co/uFjNcM42Hn pic.twitter.com/6sgoRVF7n0
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) February 1, 2021
Hrafn Jónsson átti líklega ekki að vera á myndinni.
Mynd ef þremur grínistum; Þórhallur, Eyvindur og Hrafn. https://t.co/DqfXvqbLse pic.twitter.com/3XLsTzVVDN
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) February 1, 2021
Þessi mynd átti líklega bara vera af Selmu Láru, en þessi áhugasami maður læddist með.
á enga góða af mér að photobomba en hérna er mynd sem þessi random gaur bombaði https://t.co/O3tRwDlRrB pic.twitter.com/B79sI8T3L7
— slemmi (@selmalaraa) February 1, 2021
Blaðakonan Hlédís Maren var í bakgrunni á mynd sem tekin var af kærastanum hennar fyrir fimm árum.
fyrsta myndin af mér og kæró, tekin fyrir 5 árum, missmekklegar hagyrðingar fylgdu.
— Hlédís Maren (@HledisMaren) February 1, 2021
við kynntumst síðasta sumar, en ég hef ásótt martraðir hans mun lengur. https://t.co/ap0g7rv7C0 pic.twitter.com/55Wdz149dG
Haukur Viðar Alfreðsson var á leiðinni að ná sér í kex þegar hann rataði inn á þessa mynd af Oddnýju Harðardóttur þingkonu.
Ég að væflast í vinnunni fyrir mörgum árum:
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) February 1, 2021
„Jæja, best að labba fyrir hornið og fara inn í eldhús og fá sér kex. Hmmm, það er ljósmyndari hérna. Kastarar. Ætli það sé myndataka í uppsiglingu? Ah, já, alveg rétt. Samfylkingin er að koma í myndatöku. Hvenær ætli hún byrji?“ https://t.co/5Rm9HoBcxH pic.twitter.com/FlSZI9wmEY