Dagur segir klofning innan Sjálfstæðisflokksins og efast um stjórnhæfni þeirra í borginni

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, efast um að nokkur innan Sjálfstæðisflokksins í borginni sé stjórntækur til að leiða borgina eins og er. Hann segir klofninginn sem að Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, vísar til í Fréttablaðinu í dag ekki vera innan borgarstjórnar heldur innan flokks hennar.

Þetta segir borgarstjórinn í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni.

„Klofningurinn sem Hildur er að tala um er fyrst og fremst innan Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Innan þess hóps er einhvers konar menningarstríð - einsog hún orðar það. En ofurtrú á gamla tímanum og gráum lausnum lýsir því þó örugglega betur. Það var átakanlegt að sjá að enginn frambjóðandi í nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni hafi haft kjark til að lýsa stuðningi við þá nýju, grænu og spennandi Reykjavík sem er að taka á sig mynd. Meðan svo er má efast um að þverklofinn Sjálfstæðisflokkurinn sé stjórntækur til að leiða borgina á næstu árum,“ segir Dagur í færslunni, sem má sjá hér að neðan.

Fleiri fréttir