Dagur hrósar Einari: „Hann er að gera rétt“

Framsóknarflokkurinn er með öll spil á hendi í meirihlutaviðræðum í borginni eftir kosningarnar á laugardag. Þreifingar um mögulegt meirihlutasamstarf eru farnar af stað og hefur Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, látið hafa eftir sér að hann muni ræða við oddvita allra flokka.

Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar, að hann vilji ekkert segja til um það hvort til greina komi að hann og Einar skipti með sér borgarstjórastólnum á kjörtímabilinu.

„Málefnalega snýst þetta um stóru málin, Borgarlínu og samgöngusáttmála,“ segir Dagur B. Eggertsson sem hrósar Einari. „Hann er að gera rétt með því að spjalla við alla,“ segir hann.

Í frétt Fréttablaðsins er bent á að Einar gæti myndað meirihluta með Samfylkingu og Pírötum með eða án Viðreisnar. Hann sagði á Fréttavaktinni á Hringbraut í gær að Framsóknarflokkurinn væri með fjóra fulltrúa í borginni með mjög skýrt um­boð til pólitískrar for­ystu. Einar hefur ef til vill einnig val um myndun meirihluta til hægri með Sjálfstæðismönnum, Kolbrúnu Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins, og Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, fulltrúa Viðreisnar.

Hildur Björnsdóttir segir að það væri ótrúverðugt hjá Framsókn ef flokkurinn hygðist mynda nýjan meirihluta með gamla meirihlutanum, þar sem Framsókn talaði í kosningabaráttunni fyrir breytingum.

Spurð hvort hún geri kröfu um borgarstjórastól ef flokkurinn myndar meirihluta með Framsóknarflokknum og fleiri flokkum segir Hildur að hefð sé fyrir að oddviti stærsta flokksins fái borgarstjórastól.

Fleiri fréttir