Dagur B. sendi pillu á Sjálfstæðismenn – Þá kom Bjarni Ben

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, sendi pillu á Sjálfstæðisflokkinn á Twitter í gær. Þar sagði hann ríkissjóður hafi verið rekinn með halla fyrir Covid-faraldurinn. Alls hafi halli ríkisins verið 42 milljarða króna halla árið 2019, og að halli ríkisins hafi numið 144 milljörðum á síðasta ári samanborið við 2,9 milljarða halla borgarinnar. „Borgarfulltrúar xD hafa því áhyggjur af rekstri ríki... Reykjavíkur,“ sagði Dagur.

Nokkrar umræður komu í kjölfarið. Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði að gagnrýnin hafi snúið að skuldsetningu. „Skuldsetning á góðæristímum dregur úr þrótti til þess að mæta niðursveiflu. Skuldir sem safnað er á góðæristímum þarf líka að greiða síðar,“ sagði hún.

Borgarbúi spurði Dag hvort það væri ekki einmitt vinna borgarfulltrúa að hafa áhyggjur af borginni. „Jú, ef tilefni er til,“ svaraði Dagur. „En ekki síður miðla réttum upplýsingum til kjósenda og fyllast stolti yfir það sem er gott og þróast í rétta átt. Í því er af nógu að taka.“

Þá kom Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sjálfur og svaraði Degi á Twitter: „Sæll, þetta er rangt. Það var 42 milljarða afgangur hjá okkur 2019, ekki halli. Við höfðum búið vel í haginn árin fyrir Covid og gátum þess vegna brugðist við af krafti.“

Dagur þakkaði Bjarna fyrir leiðréttinguna og sagði að um hafi verið að ræða rangfærslu í nýrri hagsjá Landsbankans. „Það voru fjárlög ársins 2020 sem voru samþykkt með halla fyrir Covid, í lok ársins 2019 - en ekki niðurstaðan 2019. Þar með ætti þetta að vera rétt.“

Fleiri fréttir