Karlmaður hefur verið dæmdur af Héraðsdómi Norðurlands eystra í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga dóttur sinni. Fréttablaðið greindi frá þessu í dag.
Samkvæmt málavaxtalýsingum í dómi gisti stúlkan reglulega hjá ömmu sinni á Akureyri og fór faðir hennar þangað að sækja hana og ók með hana í gegnum Vaðlaheiðargöng áleiðis heim til sín.
Á leiðinni káfaði maðurinn á kynfærum dóttur sinnar utanklæða, ók svo út af þjóðveginum og að malarnámu þar sem hann hélt ofbeldinu áfram, fór inn fyrir föt hennar, káfaði á brjóstum og setti fingur inn í kynfæri hennar.
Hann hélt svo áfram akstri þar til heim til hans var komið og hélt þar uppteknum hætti gegn dóttur sinni þar til hún kvartaði undan ógleði.
Stúlkan hringdi svo í vinkonu sína sem var á leið í bíl frá Akureyri til Reykjavíkur með kærastanum sínum. Var ákveðið að þau snéru rakleitt við og kæmi og sækti hana.Þegar parið kom að heimili föðurins kom brotaþoli hlaupandi til þeirra og grét í aftursæti bílsins alla leið til Akureyrar.
Ekið var með brotaþola beint á lögreglustöðina á Akureyri. Lögreglumaður ræddi við hana í aftursæti bílsins að hennar ósk en hún sagðist helst vilja fá ráðgjöf þar frekar en fara inn á lögreglustöð.
Þegar lögreglan sótti föðurinn daginn eftir brotin, lét hann þess getið áður en þeir tilkynntu honum fyrir hvað hann var handtekinn, að hann hefði kannski óvart „farið með höndina í klofið“ á dóttur sinni.
Hann var dæmur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar og til að greiða dóttur sinni tæpar 2,9 milljónir króna í miskabætur.
Hægt er að lesa alla fréttina hér.