„Það þarf ekki mikið til að gleðja okkur heilbrigðisstarfsfólk,“ segir Sara Sif Sveinsdóttir hjúkrunarnemi í samtali við Fréttablaðið í dag. Blaðið greinir frá því að starfsfólk Landspítalans hafi tekið nýjum vinnufötum fagnandi.
Eru búningarnir sagðir viðbragð spítalans við þrálátu ákalli starfsfólks um að þeim verði fundinn fatnaður við hæfi – og þá fyrst og fremst ógagnsæjar buxur sem hylja nærbuxurnar innan undir.
Búningarnir komu í vikunni og verða bæði hvítir og bláir búningar í boði. Sara segir við Fréttablaðið að eldri starfsmannafatnaður spítalans hafi verið stórgallaður þar sem neðri hlutinn var gegnsær.
„En naríurnar sjást ekki í gegn í þessum. Þannig var það áður. Og það er gaman að fá nýjan lit og breyta aðeins til.“
Nánar á vef Fréttablaðsins.