Bubbi með óvinsælu skoðun dagsins: „Ég elska nautaat“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens á heiðurinn af óvinsælu skoðun dagsins. Kóngurinn sjálfur, líkt og hann er oft kallaður, birti umdeilda færslu á Twitter í dag þar sem hann lýsti því yfir að hann væri mikll aðdáandi nautaats.

Líkt og margir vita hefur nautaat verið afar umdeilt og hafa mótmæli gegn slíku dýraníði farið vaxandi á undanförnum árum. Bubbi segir hræsni að setja sig upp á móti nautaati en borða svo dýr sem hafa lifað við hræðilegar aðstæður fyrir slátrun.

„Við höldum dýrum við hrikarlegar aðstæður hæsni svín við slátrum rollum hestum folöldum...svo er fólk að missa sig vegna þess ég elska nautat,“ skrifar Bubbi á Twitter.

Vala Arnadóttir, formaður Samtaka grænkera, bendir á að sífellt fleiri ákveða að segja skilið við dýraafurðir. „Að segjast elska dýrapyntingar er alveg next level viðbjóður,“ bætir hún við.

Eflaust hafa margir velt fyrir sér hvort um sé að ræða spaug hjá kallinum en viti menn: í annari færslu lýsir hann „leiknum“ af mikill ástríðu og aðdáun.

„Nautat er ballett dauðans hef séða Nautabana missa kjarkkinn í miðjum leik,hef séð horn fara í munn út um kinn nautið grýtti honum 2 metra uppí loftið banninn neitaði yfirgefa blóðvöllinn og kláraði atið í mörg á fór ég milli ata heltekinn Nauta er aldargömul hefð blóð og sandur.“

Fleiri fréttir