„Ég hef margsinnis fengið verðlaun fyrir þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart alls kyns vitleysu og dellumauki. Þó hefur hallað verulega undan fæti hjá mér í þessum efnum eftir setu mína í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis á þessu kjörtímabili,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar gerir málefni Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og símtöl hennar til Höllu Bergþóru Björnsdóttur á aðfangadag að umtalsefni. Tilefnið var dagbókarfærsla lögreglu um sóttvarnarbrot í Ásmundarsal þar sem Bjarni Benediktssonar var meðal gesta. Tekið var fram að háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands hefði verið meðal gesta í salnum.
Málið hefur verið talsvert til umræðu að undanförnu – þó jarðskjálftar og yfirvofandi eldgos hafi aðeins skyggt á – og var það meðal annars rætt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á dögunum.
Brynjar segir að það sé engu líkara en að hluti nefndarmanna í stjórnarandstöðu haldi að þeim hafi verið falin einhver allsherjar lögsaga og þeir geti tekið upp mál í þeim eina tilgangi að koma höggi á pólitíska andstæðinga.
„Nú síðast kröfðust þessir lögsögumenn að nefndin tæki til skoðunar tvö símtöl sem dómsmálaráðherra átti við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar frétta sem byggðist á sérkennilegri dagbókarfærslu lögreglunnar, án þess að nokkuð hafi komið fram í frásögn lögreglustjórans eða ráðherrans af símtölunum sem gaf tilefni til þess.“
Brynjar nefnir að hvorki ráðherra né lögreglustjóri telji að eitthvað óeðlilegt hafi verið við símtölin enda sé það alþekkt að yfirmaður dómsmála afli upplýsinga um mál sem hann er krafinn svara um. Sama eigi við um stofnanir sem heyra undir aðra ráðherra. Gagnrýnir hann Jón Þór Ólafsson, formann nefndarinnar, harðlega og sakar hann raunar um óheiðarleika.
„Eftir að ráðherrann og lögreglustjórinn höfðu mætt fyrir nefndina á lokuðum fundi, sem trúnaður gildir um, og upplýstu um samskipti sín í þessum símtölum komu tveir nefndarmenn fram í fjölmiðlum, og annar þeirra formaður nefndarinnar, með dylgjur og rangtúlkanir um það sem fram kom á fundinum. Slík framkoma er ekki boðleg að mínu viti og lýsir ekki miklum drengskap í garð gesta og annarra nefndarmanna að nýta það sem fer fram á lokuðum fundum til rangfærslna og rangtúlkana á orðum gesta í óstjórnlegri löngun til að koma höggi á pólitískan andstæðing.“